Úti er vor og allt í blóma. Gróðurinn er að vakna og ungviðið skríður úr eggjum. Þessi fegurð og birta umhverfisins eru þó í hrópandi andstöðu við það sem á sér stað inni í nærliggjandi kirkju. Þar flytur klerkurinn miklar eldmessur, þar sem hann fordæmir óforbetranlega syndara til eilífrar vítisvistar með tilheyrandi kvölum og pínu. Prestskonan situr eftir þegar predikuninni er lokið og kemst við...