Oflátungslegur flibbi bítur í sig þá hugmynd að hann sé kominn á giftingaraldur. Hann fer á fjörurnar við fallegt sokkaband í þvottakörfunni, en fær afdráttarlausa höfnun. Strauboltinn tekur málskrúði hans fortum fjarri og skærin sníða í hann rifu til að sýna vandlætingu sína. Loks leitar hann ásjár hjá greiðunni, en hún reynist lofuð öðrum. Þegar nálgast ævikvöldið hyggst flibbinn fegra sögu sína...