Í ævintýrinu um Spunakonurnar kynnumst við stúlku einni sem er svo löt að hún nennir engu, ekki einu sinni að spinna ull. Dag einn reiðist móðir hennar óskaplega yfir letinni og slær hana utanundir. Stúlkan fer að gráta og í sömu andrá ber drottninguna að garði. Móðirin skammast sín fyrir leti dóttur sinnar og lýgur að drottningunni og segir stúlkuna svo leiða yfir því að hafa ekki ull til að spin...