Dag einn voru úlfurinn og björninn á göngu um skóginn. Þegar þeir koma að hreiðri skógarþrastanna, konungshjóna skógarins, tekst birninum hins vegar að móðga ungana þeirra svo ógurlega að út brýst stríð á milli dýranna í skóginum. Björninn kallaði til alla ferfætlinga, stóra og smáa, og skógarþrösturinn kallaði saman alla fuglana. Þegar svo úrslitin réðust sannaðist að margur er knár þótt hann sé ...