Einu sinni var kóngur sem vildi finna biðil fyrir fögru dóttur sína. Kóngsdótturinni leist ekkert á yngismennina sem faðir hennar leiddi fram, fann þeim allt til foráttu og gerði grín að þeim. Kónginum varð þá nóg um og krafðist þess að hún skyldi giftast fyrsta manninum sem bæri að garði, hver sem hann væri. Sá reyndist vera fátækur tónlistarmaður sem bjó í litlu, hrörlegu koti rétt fyrir utan ko...