H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. "Prinsessan á bauninni" er örstutt saga sem dregur saman ímynd margra prinsessa sem finna má í verkum hans. Þó ekki sé ljóst hvers vegna hin sanna prinsessa var ein á ferli í óveðrinu er ljóst, að hún er svo sannarlega viðkvæm eins og skrautblóm.