Harmþrungin móðir situr yfir sóttarsæng barnsins síns þegar gamlan mann ber að garði. Hún býður honum inn en meðan á heimsókninni stendur rennur henni í brjóst örskots stund. Þegar hún vaknar aftur hefur gamli maðurinn, sem reyndar var dauðinn sjálfur, horfið burt og tekið veika barnið með sér. Yfirkomin af sorg leitar móðirin allra leiða til að elta dauðann uppi og endurheimta barnið sitt. Ýmsar ...