Bert Wolff læknir er fullur tilhlökkunar að hefja nýtt starf á hinu glæsilega skemmtiferðaskipi, Fidelitas. Fljótlega eftir að skipið skríður úr höfn kemst hann í kynni við hina dularfullu Evu Bertram, og við það byrja óvæntar tilfinningar að bærast í brjósti hans. Þrátt fyrir að starf læknisins sé rólegt í byrjun ferðar er Wolff grunlaus um skelfinguna sem bíður á næsta leiti. Um borð eru verðmæt...