Norðarlega í Syðstuvík, í hlíðardrögum, standa tvö hús. Annað er fallegt, hvítt og nýlegt en í húsinu býr sýslumaður og Rúna dóttir hans ásamt strangri frænku sem sér um uppeldi Rúnu. Næsta hús við er gamalt og hrörlegt kot, sem þó er umvafið ást og í kotinu búa öldruð og fátæk hjón. Þau eiga eina dóttur sem flutti erlendis og nú hafa engin bréf borist frá henni um nokkuð skeið. Sýslumaðurinn er g...