Einu sinni var fátækur viðarhöggsmaður sem átti einn son. Viðarhöggsmaðurinn átti sér þá ósk að pilturinn fengi góða og þarfa menntun svo hann gæti séð fyrir föður sínum í ellinni. Pilturinn fer í menntaskóla en tekst ekki að ljúka námi vegna fjárskorts og snýr því heim aftur. Dag einn þegar feðgarnir eru úti í skógi að höggva eldivið, ráfar pilturinn lengra inn í skóginn. Undir stóru eikartré fi...