Basil fursti leggur upp í tvísýna baráttu er hann freistar þess að afhjúpa hinn mikilsvirta fornleifafræðing, Weng Gildner. Eftir að stofustúlka Gildners er lögð inn á geðsjúkrahús og talin ólæknandi grunar furstann að yfirnáttúrulegir kraftar séu að verki. Það þarf sterkar taugar til að leysa þessa gátu og fær Basil með sér í lið hinn hugrakka Sam Foxtrot og heimsfrægu söngkonuna, ungfrú Karinu. ...