Hans Christian Andersen (1805-1875) er flestum kunnugur. Eftir hann liggja einhver þekktustu ævintýri okkar tíma, enda hafa þau verið þýdd á fjölmörg tungumál og útfærð í ótal útgáfum, bæði á prenti, á leiksviði, í sjónvarpi og ekki síst sem kvikmyndir. Meðal þekktustu ævintýra hans eru "Litla hafmeyjan", "Ljóti andarunginn ", "Nýju fötin keisarans " og "Prinsessan á bauninni ". Fyrir utan ævintýr...