Víga-Glúms saga er með elstu Íslendingasögum en hún er talin rituð á fyrri hluta 13. aldar. Verkið er ævisaga og á sér stað á 10. öld. Söguhetja þess er Glúmur Eyjólfsson en hann var mikill vígamaður og hlaut þannig nafnið Víga-Glúmur. Hann hefur jafnvel verið talinn svipa til sjálfs Egils Skalla-Grímssonar, grimmustu hetju Íslendingasagnanna. Glúmur bjó á Þverá í Eyjafirði, hann var skáldmæltur e...