Í ævintýrinu um Ríka manninn og fátæklinginn segir frá því þegar Drottinn, sem þá ferðaðist um meðal manna í jarðríki, fer í dulargervi og biður ríkan mann um næturgistingu. Sá ríki sér ekki fært um að hýsa Drottinn og vísar honum á dyr. Drottinn bankar þá upp á hjá fátæklingi sem býr á móti þeim ríka og er samstundis boðið inn. Drottinn launar örlæti fátæka mannsins með því að færa honum þrjár ...