""Á hótelinu er hægt að fá einstaka upplifun sem er hvergi annars staðar í boði, eftir því sem ég best veit, og býðst eingöngu vellríkum viðskiptavinum. Hún er kölluð LEIKHERBERGI. Þar geturðu legið á gægjum gegn borgun og fylgst með ástarleikjum annarra. Hótelgestir geta líka fengið að stunda kynlíf hérna. Það er eitthvað spennandi og sérstakt við að vita af augum handan við vegginn, einhverjum a...