Cover: Gull-Þóris saga by Óþekktur

Óþekktur

Gull-Þóris saga

 

SAGA Egmont

Gull - Þóris saga

1. kafli

Hallsteinn son Þórólfs Mostrarskeggja nam allan Þorskafjörð fyrir vestan og bjó á Hallsteinsnesi. Hann átti Ósku dóttur Þorsteins rauðs. Börn þeirra voru þau Þorsteinn surtur, Þórarinn og Þuríður. Grímkell hét frilluson hans er bjó á Grímkelsstöðum út frá Gröf. Þessir menn fóru til Íslands með Hallsteini. Hrómundur er síðan bjó í Gröf, Valgerður hét kona hans en Þorsteinn son. Eyjólfur hinn auðgi kom til Íslands með Hrómundi og bjó í Múla í Þorskafirði, Hallgerður hét kona hans en Valgerður dóttir, hún var fríð kona. Þorgeir hét maður er bjó í Þorgeirsdal. Þessir voru allir vinir Hallsteins.

Böðmóður í Skut var víkingur mikill og óeirinn mjög. Hann var son Þorbjarnar loka Eysteinssonar Grímkelssonar Önundarsonar fylsennis. Þeir voru synir Böðmóðs Þorbjörn loki er nam allan Djúpafjörð og Grónes og Vígbjóður faðir Steins mjögsiglanda er Hítdælir og Skógnesingar eru frá komnir. Með Þorbirni loka komu út Styrkár er hann gaf land í Barmi til móts við Hallstein. Dóttir Styrkárs hét Kerling og heldur margkunnig. Helgi hét bróðir Styrkárs er land keypti að Hjöllum í Þorskafirði. Hans synir voru þeir Þórarinn ákafi og Þrándur hinn mikli. Helgi var virðingamaður og þó ekki dæll við alþýðu. Þorgils hét son Þorbjarnar loka. Hann bjó á Þorgilsstöðum í Djúpafirði. Þeir feðgar voru miklir fyrir sér og ættstórir.

Úlfur hinn skjálgi son Högna hins hvíta nam Reykjanes allt milli Þorskafjarðar og Hafrafells. Hann bjó á Miðjanesi. Hans synir voru þeir Jörundur og Atli hinn rauði. Með Úlfi kom út sá maður er Hallur hét, ættstór og mikilhæfur. Hann bjó á Hofstöðum við Þorskafjörð og reisti þar hof mikið því að Úlfur var engi blótmaður. Hallur var mikill höfðingi og hnigu því margir til hans. Rauður hét son hans og bjó í Rauðsdal milli Hofstaða og Berufjarðar. Annar hét Hyrningur, sá var yngri.

Þuríður drikkinn bjó á Kinnarstöðum og átti land inn til Músarár. Hún var mörgu slegin og gerði manna mun mikinn. Synir hennar voru þeir Þorsteinn og Þórhallur, efnilegir menn.

Bera hét ekkja er bjó í Berufirði. Hún átti þrjá sonu. Björn var elstur.

Þórarinn krókur nam allan Króksfjörð meðal Hafrafells og Króksfjarðarmúla. Með honum komu út suðureyskir menn. Gilli er bjó á Gillastöðum, göfugur maður. Ketilbjörn hét son hans, hinn vænlegasti maður. Að Hafrafelli bjó Hólmgöngu-Kýlan en Naður bjó í Naðurdal. Ásmundur hét hans son. Hallvarður hrísi bjó á Hrísahvoli. Már hét son hans.

Oddur skrauti hét maður er út kom vestur í Vaðli. Hann var son Hlöðvers konungs af Gautlandi og Veru hinnar þungu Guðbrandsdóttur af Járnberalandi. Oddur kaupir lendur í Þorskafjarðarskógum að Þuríði drikkinni og bjó að Uppsölum. Hann fékk Valgerðar dóttur Eyjólfs í Múla. Þeirra son var Þórir, manna mestur og fríðastur sýnum. Grímur hét son hans hinn eldri en Þórir hinn yngri. Gísl nef nam Gilsfjörð og bjó að Kleifum. Hann átti … synir voru þeir Héðinn í Garpsdal og Herfinnur í Múla. Dætur hans voru þær Hallgríma og Þorbjörg knarrarbringa og Ingibjörg.

Ólafur belgur bjó í Ólafsdal er Ormur mjóvi rak úr Ólafsvík en Sleitu-Björn úr Belgsdal. Hans synir voru þeir Þorgeir og Jósteinn, Þorvaldur.

Steinólfur hét maður og var kallaður lági. Hann var son Hrólfs hersis af Ögðum. Hann nam land milli Grjótvallarmúla og Klofasteina og bjó á Steinólfshjalla í Fagradal. Hann átti Eirnýju Þiðrandadóttur. Steinn og Helgi voru synir þeirra en Arndís dóttir og Þuríður er Sleitu-Björn átti. Knútur og Þjóðrekur voru synir þeirra.

Steinólfur var rausnarmaður mikill í búi og hafði fjölmennt. En er honum þótti þrönglent fyrir sunnan fjörðinn nam hann Steinólfsdal í Króksfirði og gerði bú í Bæ. Hann skipaði dalinn vinum sínum. Grímur frændi hans bjó á Völlum. Hergísl hét son hans. Heimlaug völva bjó á Völvustöðum í Kambsheiði. En Steinólfur bægði henni og var hún fyrir því óvin hans. Þórarinn krókur taldi sér dalinn er Steinólfur hafði skipað og kallaði hann það sitt landnám því að svo var og gerðist af því fjandskapur með þeim Steinólfi svo að þeir drápust þar fyrir.

Vaði hét maður. Hann var skáld gott. Hann var frændi Odds og kom út með honum. Hann bjó á Skáldsstöðum í Berufirði. Óttar og Æsa voru börn hans og voru bæði mannvænleg.

2. kafli

Þá er þessir hinir ungu menn óxu upp er nú voru nefndir lögðu þeir leika með sér á Berufjarðarísi og var með þeim fóstbræðralag mikið. Þórir Oddsson var sterkastur jafn gamall og allar íþróttir hafði hann umfram sína jafnaldra. Ketilbjörn gekk næst honum um allan vaskleik. Þeir tóku fiska úr vatninu og báru í læk þann er þar er nær og fæddust þeir þar. Sá heitir nú Alifiskalækur. Þar varð í veiður mikil og taldi Hof-Hallur sér veiðina. En Þuríður drikkinn taldi sér og sínu landi og frelsti hún sveinunum.

En um veturinn léku þeir knattleika á Þorskafjarðarísi og komu þar til synir Hallsteins og Djúpfirðingar, Þorsteinn úr Gröf og Hjallasveinar. Þeir fyrir sunnan Þorskafjörð gerðu Þóri að fyrirmanni fyrir örleiks sakir og allrar atgervi. En vestanmenn vildu ekki það og ýfðust við honum allir nema Hallsteinssynir.